Þjóðvegur í eigu einkaaðila

Ákvað að skella bloggi mínu líka hér inn þar sem þetta á nú frekar heima hér...

 

Vestmannaeyjar Heimaey Auglýsing Ríkiskaups í Mogganum á sunnudaginn hefur vakið mikla athygli hér í Eyjum. Sumir vilja meina að það hafi alltaf legið fyrir að rekstraraðilinn ætti skipið. Því héldu þeir félagar, Egill Arngríms og Jenni fram í spjallinu á dekkjaverkstæðinu hjá Magga Braga í gær. Þar var einnig Stebbi Jónasar sem kom alveg af fjöllum eins og ég.  Gaman að heyra í fólki, hvort það hafi vitað þetta eða ekki. Þetta hefur alla vega farið illilega fram hjá mér...og reyndar fleirum sem ég hef rætt við.

En ef þetta hefur alltaf legið fyrir hvernig stendur þá á því að bæjaryfirvöld í Eyjum eru ekki búinn að mótmæla þessu?  Það er nógu slæmt að einkaaðili reki þjóðveginn okkar en það er nýmæli á Íslandi að einkaaðili EIGI þjóðveginn.

Svo er það skipið. Í auglýsingunni stendur að það eigi að lágmarki að taka 45 bíla og 250 farþega. Er reiknað með plássi fyrir gámanna eða eru þeir metnir sem bílgildi?  Þ.e. er einn gámur sama og þrír – fjóri bílar? Þetta er lágmarksstærðin, sú sama og útreikningar Siglingastofnunar hafa miðast við. Það var alltaf sagt þegar menn voru að mótmæla stærðinni á skipinu. „Verið róleg, þetta er líkanið en svo verður gerð þarfagreining og skipið verður eins stórt og Eyjamenn þurfa.“  Annað sem hefur greinilega farið fram hjá mér, hvenær var þessi þarfagreining gerð?  Ef ekki er búið að gera hana, væri ekki rétt að klára það áður en útboðsmál fara í gang?

Og hvað getur skipið hugsanlega verið stórt miðað við höfnina sem á að byggja? 

Ég tel þetta nýjasta útspil ríkisins köld vatnsgusa framan í Eyjamenn. Það skiptir greinilega engu máli hver situr í stól samgönguráðherra. Þetta eru sömu hrokavinnubrögðin og við kynntumst þegar Sturla var ráðherra. „Ykkur kemur þetta ekkert við,“ sjónarmiðið.

Hvað segir það okkur?  Ráðherrann stjórnar ekkert málum, það eru starfsmenn Vegagerðarinnar.

 

 


Hver eru næstu skref?

Enn eina ferðina bilar vél Herjólfs og sigldi hann í gær á annarri vélinni og tók ferðin því lengri tíma en venja er. Skipið lagðist þó að bryggju rétt rúmlega fjögur úr fyrri ferðinni. Þannig að kannski er það ásættanlegt eða hvað? Nei, þetta er ekki ásættanlegt. Hvað ætli þetta hafi komið fyrir oft á síðustu tíu til tólf mánuðum? Ég myndi giska á tíu skipti hið minnsta. Nú þykist ég vita að vélarrúmið í Herjólfi er vel skipað færum vélstjórum og veitir greinilega ekki af en eins og oft hefur komið fram þá er skipið orðið of gamalt og úr sér gengið.

Hvað er til ráða? Taka nýtt skip á leigu strax og selja núverandi skip. Við þurfum að brúa það bil sem myndast fram að Bakkafjöru. Það þarf að leysa strax.

En hvað tekur svo við? Það eru skiptar skoðanir um Bakkafjöru en niðurstaða er fengin. Þetta er að verða að veruleika og fyrir mína parta, fagna ég því. Ég sé fram á byltingu í Eyjum með tilkomu Bakkafjöru en geri mér jafnframt grein fyrir því að ekki eru allir sammála því.

Hins vegar þurfum við núna að taka niðurstöðunni og vinna út frá því. 

  1. Við þurfum að tryggja nægar ferðir. Nú þegar á að fara af stað umræða um fjölda ferða og að mínu mati á skipið að sigla meirihluta ársins frá 7 á morgnanna til 10 á kvöldin.
  2. Skapa þarf umræðu um fargjöldin. Hætta með einingakortin, enda barn síns tíma og hafa sama verð fyrir alla. Verðið á auðvitað að lækka, enda mun styttri ferð.
  3. Mín skoðun er sú að Eyjamenn eiga að berjast fyrir því að fá forræði yfir skipinu. Þá er ég að tala um að stofnað verður fyrirtæki í meirihlutaeigu bæjarins sem rekur skipið á markaðsforsendum. Það skiptir okkur miklu máli að forræðið sé okkar.
  4. Nú þegar á að leiðrétta þann “misskilning” Siglingastofnunar að átta manna áhöfn nægi á skipið. Tveir á dekki ?? Þá mun skipið seint halda áætlun, til að mynda ef það þarf að binda bíla á dekki.

Við þurfum að hefja þessa umræðu strax svo að kerfiskarlarnir í Reykjavík ákveði ekki allt fyrir okkur án þess að spyrja álits...


Er Elliði enn að bíða?

Ég kíkti inn á bloggsíðu bæjarstjórans okkar, Elliða Vignissonar og las þar ummæli Steinunnar Valdísar þar sem hún gerði afskaplega lítið úr okkur Eyjamönnum. Benti okkur á að við byggjum á eyju og efaðist um heilbrigða skynsemi okkar sem hér búum. 

Elliði sendi henni tóninn, réttilega og heimtaði útskýringu á hennar orðum. Nú hef ég verið í fríi en reyndi eftir bestu getu að fylgjast með fréttum en spyr mig hvort Elliði sé enn að bíða eftir útskýringum Steinunnar?

Ef svo er, er þá ekki kominn tími til að leita eftir þeim svörum?

 


Hrósið fær ...

Nú hefur undirritaður sleikt sólina á Spáni undanfarnar tvær vikur og það var svo sem auðvitað að á meðan hafa jarðgöng verið blásin af, bætt við ferðir Herjólfs og tekin ákvörðun um Bakkafjöru. Nú verður líka að hrósa mönnum þegar þeir eiga það skilið og að mínu mati á Kristján Möller nú skilið hrós. 

Í fyrsta lagi á hann skilið hrós fyrir að höggva á þann hnút sem jarðgangnamálið var komið í. Ekki það að ég sé ekki fylgjandi jarðgöngum, það var auðvitað kostur númer eitt en á meðan endalausar rannsóknir og misvísandi upplýsingar koma frá hinum og þessum vísindamönnunum um kostnað og í raun hvort gerandi séu göng þá gerist ekkert í okkar málum.

Eins skulum við bara líta á þá einföldu staðreynd að enginn vilji er hjá yfirvöldum til að grafa göng til Eyja og það yrði alveg sama hvaða flokkur sæti í ríkisstjórn.  

Eins finnst mér hann eiga skilið hrós fyrir að hafa tekið ákvörðun um Bakkafjöru. Ég veit að það eru gríðarlega margir sem halda því fram að þetta sé glapræði en ég vil treysta þeim mönnum sem byggt hafa hafnir í kringum landið og segja að þetta sé hægt. 

Eins vill ég velta upp þeirri spurningu hversu bættari við yrðum með nýju skipi sem siglir til Þorlákshafnar?  Mitt svar er að við værum í sömu stöðu. Það myndi engu breyta fyrir Vestmannaeyjar að siglingin styttist um 45 mínútur. 

SÞ 


Fullt í Herjólf frá Eyjum fram á mánudag nk.

Þakklæti til samgönguráðherra ætti að vera það fyrsta sem ég ætti að koma að fyrir þær úrbætur sem gerðar hafa verið í samgöngumálum að undanförnu, þó ég sé sáttur við þær úrbætur með 15 ferða viðbót á næsta ári mun það sennilega ekki duga fyrir okkur Eyjamenn til 2010.

Nú er ég að fara í helgarfrí og hafði hugsað mér að ferðast með Herjólfi, sem betur fer pantaði ég með góðum fyrirvara, þó voru ekki allir eins heppnir og ég því þrátt fyrir að bætt hefi verið við ferð kl 23:00 á fimmtud, frá Vestmannaeyjumi eru yfir 40 bílar komnir á biðlista frá fimmtudegi til mánudags. 

Ég velti fyrir mér hvernig þetta verður eftir 2-3 ár, og að auki hversu margir Eyjamenn verða búnir að gefast upp á ástandinu og flytja burt.

Varðandi ferjulægi við Bakkafjöru, þá er ekki annað hægt en að dást að Samgönguráðherra fyrir það eitt að taka ákvörðun fyrir alla Eyjamenn, EN! nú ber hann ábyrgð á því að dæmið við Bakkafjöru gangi upp. 

Ég er sammála ákvörðun Samgönguráðherra á sama tíma og Eyjamenn slást innbyrðis um hvaða kostur sé bestur, ef Eyjamenn myndu fá að halda áfram að rífast um þá hluti yrði ekkert gert næstu árin.

Ef Bakkafjara verður klúður mun Kristján Möller hafa mikið á samviskunni, því það gæti lagt Eyjuna nánast  í eyði.

Grétar Ómarsson.

 


Samgönguráðherra fljótur að gleyma

Já kæru landsmenn Kristján Möller er fljótur að gleyma kosningaloforðum og hvar er réttlætiskenndin hans þessa daganna, ég hefði haldið að það byggju fleiri í Eyjum en á Siglufirði sem dæmi! Svona vinnubrögð getum við Eyjamenn og gestir sem vilja ferðast með bíl til Eyja ekki þolað til lengdar.   H.Þ.G.

Sæta dýrið sendir mér tóninn

Verð að fá að bæta aðeins við fyrri færslu mína hér í kvöld. Þar sem Morgunblaðinu finnst það ekki frétt að Samgönguráðherra líti á samgöngur við Vestmannaeyjar sem greiða verð ég að setja inn frétt af Rúv.is til að útskýra:

Samgönguráðuneytið lítur ekki svo á að ríkinu eða aðilum á þess vegum beri skylda til að halda uppi ferjusamgöngum til Vestmannaeyja og geti í raun ákveðið að hætta með öllu eða draga úr þátttöku í þeim.Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir þetta óþolandi aðstæður og kallar eftir skýrari löggjöf.

Umboðsmaður Alþingis kannar nú á hvaða grundvelli fargjöld fyrir einstaklinga og bifreiðar vegna ferða með Herjólfi séu ákveðin og hefur í því sambandi skoðað hlutverk hins opinbera í samgöngum til Vestmannaeyja.

Í svari Samgönguráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns um þetta mál segir að samkvæmt núgildandi lögum sé ríkinu ekki skylt að halda uppi ferjusamgöngum til Vestmannaeyja. Samningur um rekstur Herjólfs sé aðeins aðferð til að bæta samgöngur milli lands og Eyja og fjármunir til þess ákveðnir í tengslum við samgönguáætlun.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, er ósammála þessari skoðun ráðuneytisins enda hafi alþingismenn og embættismenn ítrekað haldið því fram að Herjólfur þjóni því hlutverki sem hið almenna vegakerfi landsins geri annars staðar. Sé hinsvegar einhver vafi þar á þurfi að bæta lagatextann.

Í bréfi ráðuneytisins, sem skrifað er 4. júní síðastliðinn segir jafnframt að litið sé svo á að Herjólfur geti ekki talist samgöngumannvirki og lúti því ekki vegalögum. Í 23. grein vegalaga segir hinsvegar að heimilt sé að greiða hluta kostnaðar við ferjur til flutnings á fólki og bifreiðum, enda komi ferjan í stað vegasambands. Þetta segir Elliði benda til þess að reglugerðir um samgöngumannvirki nái til Herjólfs.

Þarna er ekki minnst á Þjóðhátíðina og í raun er hún aukaatriði í öllu okkar stríði fyrir bættum samgöngum og mannsæmandi skilyrðum til búsetu í Eyjum. 

Vestmannaeyingar hafa aldrei verið og verða aldrei þurfalingar á íslenska ríkinu. Við höfum í gegnum tíðina verið með eitt öflugasta samfélagið á landsbyggðinni. Eyjamenn eru mjög ofarlega í meðallaunum og borgum því okkar til ríkisins og rúmlega það vill ég meina. Þess vegna er ömurlegt að lesa skrif misvitra kettlinga úr Reykjavík um okkar mál.  Það er lágmarkskrafa að fólk kynni sér hlutina áður en það fer að mjálma. 

Þetta er ekki flokkspólitískt mál. Sjálfstæðisflokkurinn réði ríkjum í 12 ár í samgönguráðuneytinu. Á þeim tíma er þessi hugsun um greiðann við Eyjamenn mótuð. Þá hugsun erfir Kristján Möller og það er sorglegt, miðað við yfirlýsingar hans og fleiri úr sama flokki að ekkert sé gert til að breyta þessu.

Við vitum núna raunverulega ástæðu þess að ekkert er gert í okkar málum. Ráðuneytinu og þar með Kristjáni Möller, því það er jú hann sem stjórnar því er á þeirri skoðun að það sé ekki í þeirra verkahring.

Sammála dýrinu í einu. Björgum okkur sjálf. Eigum við ekki að ráðast í eitthvað róttækt? 

 SÞ

 


Loksins loksins er komin skýring!

Það kom að því að Kristján Möller og félagar opinberi sína skoðun á okkur Eyjamönnum. Þeir líta sem sagt svo á að þeim beri ekki skylda til að halda uppi samgöngum við Vestmannaeyjar. Svar ráðuneytisins hlýtur að vera með samþykki og vilja ráðherrans og því hlýtur maður að túlka svar ráðuneytisins sem túlkun hans og þar með Samfylkingarinnar. 

Kristján Möller og Samfylkingin telja sig geta hætt siglingum til Vestmannaeyja þegar þeim hentar.

Kristján Möller og Samfylkingin telja að eðlilegt sé að við Eyjamenn greiðum sér skatta í formi gjalds fyrir afnot af Herjólfi.

Kristján Möller og Samfylkingin líta á rekstur Herjólfs sem kvöð á ráðuneytinu, ekki hluta af vegakerfinu.

Kristján Möller og Samfylkingin vilja ekki auka ferðir Herjólfs til að mæta vaxandi áhuga fólks að heimsækja okkur.

Kristján Möller og Samfylkingin líta aðeins á það sem greiða við okkur Eyjamenn að halda úti rekstri Herjólfs.

Og þetta finnst engum vera frétt?


 


mbl.is Ferðum Herjólfs ekki fjölgað frekar um verslunarmannahelgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður Elliði!

Ég var ánægður með að lesa eyjafréttir áðan þar sem kom fram að Elliði Vignisson bæjarstjóri var að senda samgönguráðherra tóninn. 

Ellefu rauð strik, neyðaráætlun sett í gagnið víðs vegar um land til að hraða vegaframkvæmdum vegna minnkandi þorskkvóta. Spyr mig reyndar hvernig vegirnir eiga að koma í veg fyrir aflann en það er nú önnur saga. Hins vegar er þetta svar ríkisstjórnarinnar.

Og hrópandi þögn þeirra varðandi Vestmannaeyjar er sorgleg svo ekki sé meira sagt. Þriðja stærsta verstöð landsins í þorskkvóta talið, stærsta verstöð landsins og það svæði sem býr við ein verstu samgönguskilyrði á landinu gleymdust.

Það er eins og Kristján sé með kort, bara af ÍSLANDI, það vantar eyjurnar í kring... 

SÞ 


Einhugur í ríkisstjórninni

Það kemur ekki á óvart að það skuli vera einhugur í ríkisstjórninni um þessar vegaframkvæmdir. Það vilja allir líta vel út í kjölfar niðurskurðar þorskaflans. 

Ég er ánægður með Suðurstrandarveginn en þögn Kristjáns um okkar málefni er ótrúleg. 

Marshall aðstoðin virðist víðsfjarri...

 


mbl.is Samgönguráðherra: fjármagn flutt til sem var þegar á samgönguáætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband